Hér er á ferðinni frábær þjálfun fyrir einstaklinga 60 ára og eldri búsetta hér í Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra og er þátttaka án
endurgjalds. 

Við leggjum áherslu á góðar og skemmtilegar þol- og styrktaræfingar
og það eru í boði æfingar sem henta öllum.
Það skiptir okkur miklu máli að rækta líkama okkar. Með hækkandi
aldri þá þurfum við að leggja meiri áherslu á að halda vöðvamassanum hjá okkur og eru styrktaræfingarnar frábærar fyrir það.
Við erum öll í mismunandi formi og með mismunandi kraft, en látum
það ekki stoppa okkur. Það er alveg magnað hvað þessar æfingar
gera okkur gott.


Umsjónarmaður er Drífa Nikulásdóttir s: 690 3433

Komdu og vertu með okkur í vetur
Æfingar hefjast: Hellu fimmtudaginn 29. ágúst
Hvolsvelli þriðjudaginn 3. september

Æfingarnar eru á eftirfarandi tímum:
Mánudögum og fimmtudögum kl: 10:00 í íþróttahúsinu á Hellu
Þriðjudögum og föstudögum kl: 10:00 í Hvolnum á Hvolsvelli