- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Héraðsnefnd Rangæinga auglýsir eftir umsóknum um styrk til menningaruppbyggingar í Rangárvallasýslu.
Skilyrði er að verkefnin sem sótt er um tengist uppbyggingu á menningarlegum arfi eða verðmætum í Rangárvallasýslu.
Stakir viðburðir koma ekki til greina við úthlutun.
Umsóknir ásamt greinargóðri kynningu sendist á oddvita héraðsnefndar margretharpa@ry.is fyrir 5. apríl 2024.
Nánari upplýsingar gefur Margrét Harpa á netfanginu margretharpa@ry.is eða í síma 868-2543.