Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga verður laugardaginn 15. desember n.k frá kl. 13-16 í Bolholtsskógi á Rangárvöllum. Þá býðst fólki að koma í skóginn og höggva sitt eigið tré. Eingöngu verður í boði að höggva stafafuru á staðnum en einnig verður til sölu takmarkað magn af grenitrjám.
Með kaupum á íslensku „jólatré“ stuðlum við að minni mengun og styrkjum gott málefni.
Að venju verður boðið uppá hressingu í skóginum. Upplýsingar eru í síma 8692042.