Námið á Reykjum Á
Reykjum í Ölfusi starfar Starfs– og endurmenntunardeild
Landbúnaðarháskólans. Þar er boðið upp á garðyrkjutengt nám á fjórum
brautum: blómaskreytinga-, garðplöntuframleiðslu-, skógar- og umhverfis-
og skrúðgarðyrkjubraut. Einnig er boðið upp á fjölbreytt
endurmenntunarnámskeið bæði fyrir fagfólk og almenning. Næst verða
teknir nemendur á þessar brautir haustið 2012. Leitið upplýsinga á
heimasíðu skólans http://www.lbhi.is/ eða í síma 433 5000
Endurmenntun Kynnt
verða endurmenntunarnámskeið á vegum Landbúnaðarháskólans. Í boði er
fjöldi námskeiða, hvort sem er fyrir fólk innan landbúnaðarins og
áhugafólk. Komið og fáið allar upplýsingar um þau námskeið sem framundan
eru.
Sala og kaffiveitingar Í
skólabyggingunni er markaðstorg þar sem seldar eru garðyrkjuafurðir.
Allt eru þetta úrvals vörur frá íslenskum framleiðendum. Í mötuneyti
skólans er boðið upp á kaffi og heimabakað meðlæti. Kaffiveitingarnar á
Reykjum eru fastur liður í sumarkomunni hjá mörgum.
Kynningar - skemmtun - fræðsla Í
garðskála er að finna kynningarbása frá ýmsum aðilum. Þar er hægt að
kaupa ýmsar vörur og fræðast um margt. Nemendur í blómaskreytingum verða
við vinnu og útbúa skreytingar. Stutt fræðsluerindi verða í
kennslustofum og hægt verður að spyrjast fyrir um það sem heitast
brennur á ræktendum. Í Bananahúsinu er hægt að skoða hitabeltisgróður og
sjá bananana þroskast á trjánum. Í verknámshúsi skrúðgarðyrkjunnar eru
fyrirtæki á garðyrkjusviðinu að kynna nýjungar fyrir sumarið. Þarna má
t.d. sjá (kl. 13) kynningu á rósarækt undir LED lömpum í klefa 9 í
tilraunagróðurhúsinu. Einnig verða kynntir nýir LED lampar. Sjá nánar hér.
Pottaplöntusafn skólans verður til sýnis. Einnig er margt um að vera á
útisvæðum skólans. Ýmis afþreying verður í boði fyrir börnin.
Annað skemmtilegt í Hveragerði á laugardaginn! Kl. 10 Ljóðalestur við sundlaugina
Kl. 12 Páskaeggjaleit við sundlaugina
Hádegið:
Tveir fyrir einn í hádegisverð á Heilsustofnun NLFÍ. Frítt í mat fyrir
yngri en 12 ára. Frítt í sund í baðhúsi Heilsustofnunar NLFÍ.
Kl. 16 Leiðsögn um sýningar í Listasafni Árnesinga, Austurmörk 21.