- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi.
Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands:
Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480 8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is
Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn www.sass.is
Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að sækja um styrk með íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila en ekki einkakennitölu verkefnastjóra.
Starfandi fyrirtæki eru sérstaklega hvött til að sækja um styrk vegna nýsköpunarverkefna.
Upplýsingar um úthlutunarreglur, leiðbeiningar við gerð umsókna og viðmið við mat á umsóknum er að finna hér
Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 5. mars 2019.