- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Kæru íbúar
Laugardaginn 23. júlí verður hjólakeppnin The Rift haldin með um 1100 keppendum. Hjólaðar eru 3 veglendir, 200 km, 100 km og 45 km. Lang flestir hjóla 200 km sem er hringinn í kringum Heklu. Keppnin byrjar kl: 07:00 laugardaginn 23. júlí. Upphaf og endir er við veitingahúsið Valhalla, Hlíðarvegi 14. Flestir keppendur koma í mark frá klukkan 14:00 – 17:00. Við Valhalla verður hægt að kaupa sér mat, drykk og notið stemmingarinnar með keppendum.
Við hvetjum sem flesta til að koma og fylgjast með.
Nánari upplýsingar á vefsíðu Rift - The Rift