Þá er komið að Umræðupartýi UMFÍ númer tvö. Viðburðurinn fer fram laugardaginn 20. maí kl. 12.00 – 15.45 í félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli.
Ungt fólk á aldrinum 15 – 25 ára er sérstaklega hvatt til þátttöku. Stjórnendur íþrótta- og ungmennafélaga eru jafnframt hvattir til þátttöku og eiga samtal við yngri kynslóðina. Til umræðu verður annarsvegar fræðsla og forvarnir - hvernig forvarnafræðslu kallar ungt fólk eftir? og hinsvegar þátttaka – hvernig vill ungt fólk fá að taka þátt?
Á viðburðinum gefst ungu fólki tækifæri til þess að koma skoðunum sínum á framfæri og þeim sem eldri eru að hlusta og heyra skoðanir ungs fólk.
Fulltrúar úr ungmennaráði UMFÍ sjá um að stýra og stjórna umræðum.
UMFÍ styrkir ferðakostnað þátttakenda sem þurfa að ferðast lengra en 50km aðra leið. Verkefnið er styrkt af Evrópu unga fólksins.