- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
VISS, vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða leiðbeinenda í 50% stöðu sem fyrst. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Hjá VISS er unnið eftir hugmyndafræðinni „Þjónandi leiðsögn“ og „Sjálfstætt líf“. Leiðbeinendur vinna samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.
Meginverkefni:
Veita stuðning, einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu.
Umsjón verkefna starfsstöðvarinnar.
Veita persónulega aðstoð við athafnir daglegs lífs.
Skipuleggja og forgangsraða störfum sínum í samráði við viðkomandi yfirmenn.
Hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi
Reynslu í starfi með fötluðu fólki
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Hæfni í mannlegum samskiptum
Jákvæðni og góð þjónustulund
Almenn tölvu kunnátta
Hreint sakarvottorð
Umsóknar frestur er til og með 3. mars 2024
Nánari upplýsingar veitir Elías Árnason deildarstjóri VISS á Hvolsvelli viss@hvolsvollur.is
Umsóknum skal skilað á netfangið svava@felagsmal.is eða anton@hvolsvollur.is
Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag í stöðugri sókn. Sveitarfélagið leggur ríka áherslu á samvinnu, virðingu og vellíðan á vinnustað.
Öllum umsóknum verður svarað.