- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Undanfarna mánuði hefur staðið yfir undirbúningsvinna við opnun VISS starfshæfingarstöðvar á Hvolsvelli.
Starfsstöðin mun opna nú á allra næstu dögum í gamla matsalnum á Kirkjuhvoli sem hefur fengið verulega andlitslyftingu.
Forstöðumaður og leiðbeinandi hafa verið ráðin, þau Gunnsteinn Sigurðsson og Arnheiður Dögg Einarsdóttir og eru bæði tekin til starfa.
Umsóknir um störf á hæfingarstöðinni fara fram á vef Vinnumálastofnunar og mun það verða auglýst nú á næstu dögum.
Um er að ræða mjög mikið framfaraskref í sveitarfélaginu á þessu sviði og mun vinnustaðurinn vonandi vaxa og dafna á næstu árum.