- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
VÖRUHÖNNUN OG FRAMSETNING – ÞRÓUN MINJAGRIPA
21. september og 5. október
Ingunn Jónsdóttir vöruhönnuður er leiðbeinandi á
námskeiðinu.
Fyrri daginn, 21. september verður kennsla í fjarfundi frá
kl. 10:00 til 15:30. Þá verður farið yfir hvað minjagripur er í eðli sínu og
hvað hann á að tákna. Hvað einkennir góða minjagripi og hvað ekki. Rætt um
sérkenni staða og hvað hægt er að nýta til að gera góðan minjagrip. Hvað getur
flokkast sem minjagripur: matur, upplifun, hlutir eða „brot úr náttúrunni“.
Undirbúningur fyrir seinni dag: hver og einn hannar og
þróar minjagrip sem hentar þeirra starfsemi. Getur verðið tilbúinn hlutur eða á
vel útfærðu hugmyndastigi.
Seinni daginn, 5. október er kennt á Hvolsvelli frá 10:00
til 15:30 og koma þá þátttakendur með hugmyndir sínar og hönnun, spá í
útfærslur og fá ráðleggingar um framhaldið. Skoðað, metið og rætt. Hvað er gott
og hvað má gera betur. Allir fá tíma til að fara yfir sína hluti og fá gagnrýni
frá hópnum.
Verð 6.000 kr. Nánari upplýsingar hjá rannveig@katlageopark.is
eða jonabjork@katlageopark.is.
Innritun fer fram hjá
Fræðslunetinu í síma 560 2030 eða í tölvupósti, steinunnosk@fraedslunet.is.
Gefa þarf upp nafn, kennitölu, heimilisfang og símanúmer.